Gotneskar ástarsögur
Format
Format
User Rating
User Rating
Release Date
Release Date
Date Added
Date Added
Language
Language

Íslenska
ebook
Bölvun Konunganna
Number 8 in Series
by Victoria Holt
(0)
Dauðinn sækir þá heim sem trufla hina eilífu hvíld konunganna… Fyrir Judith Osmond virðast allir draumar hennar hafa ræst. Þrátt fyrir að hafa fæðst í fátækt erfir hún ríkan ættingja og getur því gert allt sem hún vill. Hún giftist Tybalt, ungum fornleifafræðingi sem hún hefur verið ástfangin af frá unga aldri, og þau ferðast til Egyptalands, nokkuð sem Judith hefur alltaf dreymt um að gera. En það er í Egyptalandi sem bölvun konunganna virðist ætla að rætast og það reynir á kænsku Judith að leysa ráðgátuna.

Íslenska
ebook
Greifinn og enska frænkan
Number 12 in Series
by Victoria Holt
(0)
Minella Maddox elst upp á enskum herragarði. Frá unga aldri veit hún hins vegar að henni er ekki ætlað að búa þar til frambúðar, enda er hún aðeins dóttir kennslukonunnar. Í fyrsta sinn sem hún sér hinn hrokafulla greifa Fontaines Delibes kallar hún hann "greifann á hestbaki". Hann bæði hræðir hana og heillar og fundur þeirra verður örlagaríkur. Þrátt fyrir að hann sé frægur kvennabósi getur Minella ekki hætt að hugsa um hann og fljótlega snýst líf hennar um hann.
Greifinn ræður Minellu sem lagskonu dóttur sinnar, hún flytur með þeim til Frakklands, beint inn í ólgandi hringiðu frönsku byltingarinnar. Hún verður svo ástfangin að hún getur ekki sleppt takinu, þrátt fyrir að líf hennar sé í hættu og maðurinn sem hún elskar muni án efa verða eitt af fyrstu fórnarlömbum byltingarinnar.

Íslenska
ebook
Leyndarmál óðalsins
Number 21 in Series
by Victoria Holt
(0)
Frederica Hammond flytur til frænku sinnar í notalegt þorp í Wiltshire-sýslu eftir að móðir hennar ferst í hryllilegu slysi. Þar eignast hún fljótt vinkonur, unir sér vel og verður ástfangin af Crispin St. Aubyn. En skjótt skipast veður í lofti og fyrr en varir áttar Frederica sig á því að í þorpinu er margt flóknara en það virðist við fyrstu sýn. Grimmileg leyndarmál koma í ljós hvert á fætur öðru og leiða Fredericu og vinkonu hennar yfir hálfan hnöttinn í leit að svörum.
Spennandi saga um ungar ástir, vináttu og svik. Það er ekki af ástæðulausu að Victoria Holt hefur verið kölluð drottning ástarsagnanna. Hér sýnir hún og sannar að hún er sérfræðingur í því að vefa saman ástinni og leyndarmálum, fjölskylduerjum og ævintýralegum söguþræði.

Íslenska
ebook
Örlagavefur
Number 22 in Series
by Victoria Holt
(0)
Þegar móðir Noelle Trematon, söngleikjastjarnan Desíra, kynnist munaðarleysingjanum Lísu Fennell breytist líf þeirra mæðgna að eilífu. Fljótlega fellur Desíra frá á voveiflegan hátt og Noelle, sem aldrei hefur þekkt föður sinn, verður ástfangin. En í kjölfar andláts Desíru koma upp á yfirborðið ýmis leyndarmál sem eitt af öðru draga Noelle á gamlar slóðir móður sinnar í París þar sem ekki er allt sem sýnist.
Noelle er flækt í örlagavef. Hana langar einfaldlega að lifa hamingjusömu lífi en flókin fjölskylduleyndarmál virðast ætla að standa í vegi fyrir því. Sorgin er ekki langt undan en getur ástin sigrað?
Í þessari sögulegu skáldsögu skrifar Victoria Holt snilldarlega um sambönd foreldra og barna, syndaaflausn, leyndarmál og auðvitað flækjur ástarlífsins á viktoríanska tímanum, eins og henni einni er lagið.
Showing 1 to 4 of 4 results